UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Seljandi er M10 ehf., kt.. 690708-0270, til húsa að Fjarðargötu 11, 220 Hafnarfirði.

SKILAFRESTUR

Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd að fullu innan 30 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar, nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.Vörum er einnig hægt er að skila og skipta hjá Simaveski.is, Smáralind á opnunartíma verslunar.

VERÐ

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar samanber ákvæði þess efnis hér að framan.GreiðslumöguleikarSeljandi notar örugga greiðslugátt frá Borgun. Hægt er að greiða með kreditkortum frá Visa og Mastercard, staðgreiða með millifærslu eða fá sent í pósti.

EIGNARRÉTTARFYRIRVARI

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin.

LAGAÁKVÆÐI

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

HÖFUNDARRÉTTUR

Allt efni á www.simaveski.is texti, grafík, lógó og myndir, eru eign M10 ehf.

VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Skilmálar þessir gilda frá 1. desember 2017.Nánari upplýsingarEf þú þarft nánari upplýsingar, sendu okkur þá fyrirspurn á sala@simaveski.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.