Hert gler · HD skýrleiki

Skjávörn sem hverfur á skjáinn.

Hert gler með HD skýrleika og uppsetningarramma sem fylgir og auðveldar þér ásetninguna

Af hverju

Vörn sem þú tekur ekki eftir — fyrr en þú þarft á henni að halda.

Hert gler

Ver gegn rispum og minnkar líkur á sprungnum skjá við dagleg óhöpp. Glerið tekur höggið — ekki síminn.

HD skýrleiki

Kristaltær mynd og fullum lit haldið. Glerið er svo tært að þú gleymir að það sé þar.

Uppsetningarrammi fylgir

HD Kit ramminn stillir glerið af sjálfkrafa. Kemur í setti sem gerir ásetninguna mjög auðvelda

Óskert snertivirkni

Snerting, Face ID og hljóðnemi virka nákvæmlega eins og áður. Þú finnur engan mun.

Ásetningarramminn

Erfiðasti hlutinn er að setja hana á rétt. Við leystum það.

Með hverri skjávörn fylgir HD Kit rammi sem er smellt utan um símann og leggur glerið nákvæmlega á sinn stað og auðveldar ásetninguna

Erfiðasti hlutinn er að setja hana á rétt. Við leystum það.
Ásetning

Tekur stutta stund

Ramminn gerir alla vinnuna. Fylgdu skrefunum og þetta er komið hjá þér

  1. 1

    Hreinsaðu skjáinn

    Þurrkaðu af með klútnum og fjarlægðu ryk með límmiðanum sem fylgir.

  2. 2

    Smelltu rammanum á

    HD Kit ramminn passar utan um símann og stillir glerið nákvæmlega af.

  3. 3

    Leggðu glerið á

    Slepptu glerinu í rammann — það sest sjálft á réttan stað.

  4. 4

    Strjúktu úr loftbólum

    Ýttu létt frá miðju út á brúnir til að eyða loftbólunum.

  5. 5

    Tilbúið

    Fjarlægðu rammann. Fullkomin ásetning — í fyrstu tilraun.

Passar saman

Passar vel með símahulstrunum okkar

Þunnar brúnir sem rekast ekki á hulstrið og flagna ekki upp. Veldu skjávörn og hulstur saman — fullkomin vörn fyrir símann þinn

Skoða símahulstur
Spurt og svarað

Það sem fólk spyr um.

Passar skjávörnin mínum síma?

Veldu tækið þitt á vörusíðunni — við eigum gler fyrir flestar iPhone gerðir. Finnurðu ekki þína gerð? Hafðu samband og við reddum því.

Fylgja verkfæri með?

Já. Uppsetningarrammi (HD Kit), hreinsiklútur, ryklímmiði og blautþurrka fylgja hverju gleri. Þú þarft ekkert annað.

Hvað ef glerið springur?

Þá tók glerið höggið — ekki skjárinn þinn. Það er einmitt tilgangurinn. Skiptu því einfaldlega út fyrir nýtt.

Hefur það áhrif á Face ID eða snertingu?

Nei. Glerið er hannað fyrir fulla snertivirkni og Face ID heldur áfram að virka eðlilega.

Verðu skjáinn í dag

Skjávörn sem ver símann þinn

Hert gler, HD skýrleiki og rammi sem gerir ásetninguna fullkomna. Veldu þína gerð.

Finndu skjávörn fyrir þinn síma